Jun 9, 2012

EM í knattspyrnu að byrja

Hér í Þýskalandi er undirbúningur fyrir EM í fullum gangi. Ég var samferða þessum tveimur í lestinni um daginn.

Sá þá svo örlítið seinna á gangbraut.

Jun 4, 2012

Skrópað í ensku

Mér fannst ég eiga einn frídag inni eftir að hafa eytt laugardeginum í skólanum. Ljúft að vera bara heima á mánudegi, hlusta á plötur og dytta að ýmsu sem á að vera löngu búið að laga, t.d. að líma sófaborðið sem að hefur hingað til verið ansi valt.

Jun 3, 2012

Lange Nacht der Wissenschaften - Vísindanótt

Í gær var Vísindanótt. Þá eru vísindastofnanir í borginni með opin hús fyrir almenning, meðal þeirra er skólinn minn. 

Við í ljósmyndaforvörslunni buðum fólki að kíkja á vinnustofuna okkar og þeir sem vildu máttu koma með gamlar myndir til þess að fá aldursgreiningu og ráð um varðveislu.

Það var ágætis mæting og mikill áhugi.

Við buðum líka uppá að skoða tilraunaefnið okkar, m.a. þessar gömlu glerplötur.

Þær líta svona út á ljósaborðinu.

En svona eftir smá Photoshop leik hjá mér.

Svona voru nú umbúðirnar utan um filmur og glerplötur hér á árum áður.

Við vorum líka með gömul myndaalbúm til sýnis.

Hér er vinnustöð fyrir kvikmyndaforvörsluna.

Hér er fólk að fá ráðgjöf og fræðslu.

En við vorum ekki eina deildin í skólanum sem að bauð uppá kynningu.

Hér eru samnemendur mínir sem eru að læra að skipuleggja fornleifauppgrefti. Þeir voru að kynna verkefni í Aleppo í Sýrlandi sem að skóli kom að.

Og þau voru líka að sýna tækin sín.

Hér er verkefnið sem að tækniminjaforverðirnir eru að dunda sér við. Þau eru að vinna að því að varðveita þennan brauðbíl.

Hér eru nemendur í verkfræði að kynna kappaksturslið skólans.

Fatahönnuðir.

Og tölvuleikjahönnuðir að sýna flughermi. Sem sagt allt að gerast í Hochschule für Technik und Wirtschaft Berlin.