Jan 9, 2012
Jan 8, 2012
Gierkeplatz
![]() |
| Við hjónin fórum í hjólatúr um Charlottenburg hverfið um daginn. Ég hafði fengið verkefni í listasögukúrs í skólanum sem snérist um að skoða eitt af torgum borgarinnar. Ég valdi Gierkeplatz sem er í kringum þessa kirkju, Luisenkirche, sem var byggð árið 1716 og endurnýjuð á árunum 1823-1826 af Karl Friedrich Schinkel, einum þekktasta arkitekt Prússa. Kirkjan var að lokum endurbyggð að mestu leyti eftir að sprengja féll á hana í loftárás árið 1943. |
![]() |
| Hérna sést kirkjan fá austri. Hún stendur á torgi sem að er hringlaga og svo eru íbúðahús allt í kring. |
![]() |
| Í næstu götu rákumst við svo á þessa huggulegu hjólabúð. |
![]() |
| Mér varð hugsað til Kobba þegar að ég sá þessa fallegu jólaskreytingu í glugganum hjá þeim. |
![]() |
| Þetta hús er svo í sömu götu og Gierkeplatz. Það hýsir keramiksafn Berlínar. Nokkrum mínútum eftir að þessi mynd var tekin gerði hellidembu svo að það voru ekki teknar fleiri myndir þennan daginn. |
Dec 31, 2011
Dec 23, 2011
Þorláksmessa í Berlín
![]() |
| Það er frekar lítið að gera hjá þessum í augnablikinu, enda hefur ekkert snjóað hér það sem af er vetri. |
![]() |
| Hann er þó algjörlega til í slaginn. Líklega best græjaða Lada Sport sem að ég hef séð. |
![]() |
| Svo var jólatréð tekið inn. Það var lítið mál að finna tré, en fót gátum við hvergi grafið upp þrátt fyrir mikla leit... |
![]() |
| ...svo að við þurftum bara að nýta það sem til var á heimilinu. Málinu reddað. |
Dec 20, 2011
Jæja, nú er ég loksins kominn í jólastuð!
Dec 13, 2011
Dec 12, 2011
Dec 8, 2011
Dec 5, 2011
Cyanotype workshop - HTW
Ég fór á workshop í skólanum um helgina þar sem að við lærðum að prenta ljósmyndir með 170 ára gamalli aðferð sem að heitir Cyanotype.
Alltaf er maður nú að prófa eitthvað nýtt hérna í útlöndum.
![]() |
| Svo þarf að setja negatífu eða pósitífu ofaná pappírinn og lýsa með UV ljósi svo að eitthvað gerist. |
![]() |
| Það eru svaka fallegir litir í svona ljósi og allir þurfa að vera með sólgleraugu. |
![]() |
| Svo er að skola drulluna af... |
![]() |
| ...og láta liggja í vatni í 15 mín. |
![]() | |
| Hér eru Lukas og Rosa með afrakstur helgarinnar. Hér fyrir neðan eru svo myndirnar sem að ég náði útúr þessu. |
![]() |
| Liturinn sem að fæst með þessari aðferð heitir Prússneskur blár eða Berlínar blár. |
![]() |
| Þessi aðferð náði víst ekki miklum vinsældum vegna þess hversu ónáttúrulegur liturinn er. Hún var þó mikið notuð til þess að taka afrit af teikningum og var upprunalega aðferðin til að búa til svokölluð Blueprints. |
Alltaf er maður nú að prófa eitthvað nýtt hérna í útlöndum.
Nov 19, 2011
Oberschöneweide
![]() |
| Skólinn minn er í hverfi sem að heitir Oberschöneweide. Þar eru gríðarmargar gamlar verksmiðjubyggingar sem standa margar tómar núna. Þetta er útsýnið sem að ég hef í enskutímum á mánudögum. |
Nov 7, 2011
Nov 4, 2011
Oct 30, 2011
Oct 28, 2011
Internet, íslenskur heimasími og heila klabbið.
![]() |
| Ef að þið viljið númerið, sendið mér þá tölvupóst hér. |
Oct 26, 2011
Subscribe to:
Posts (Atom)

















































