![]() |
| Hálfmaraþonlið |
![]() |
| Allir hressir rétt fyrir hlaup |
![]() |
| Við Óli kíktum bara á róló á meðan gamla liðið hljóp |
![]() |
| Allir búnir áðí |
![]() |
| Við erum farin að sitja hlið við hlið í vinnuherberginu. Það er mun notalegra en að sitja sitt hvoru megin í íbúðinni, 13 metra frá hvort öðru. |
![]() |
| Trén í bakgarðinum eru farin að grænka. |
![]() |
| Svo ég mun grandskoða þessa tvo herramenn næstu vikurnar. |
![]() |
| Júlía er farin að drekka morgunkaffið og vinna í eldhúsglugganum. Það er jú eini glugginn í íbúðinni okkar sem að vísar í suður. |
![]() |
| Svona var stemningin og veðrið þann 24. mars. Flest allir komnir í stuttbuxur og jafnvel á hlýrabol. Þá verður maður bara að fara í almenningsgarð að lesa og drekka kaffi. |
![]() |
| Diðrik kíkti í sunnudags morgunkaffi. Hann var á skólaferðalagi um Þýskaland til að skoða postulínsverksmiðjur. |
![]() |
| Bibbi kom í kaffi og mat. Hann býr í Amsterdam en var í eins sólarhrings vegabréfsreddingartúr til Berlínar. Sendiráð Íslands í Hollandi er víst ekki mjög tæknivætt. |
![]() |
| Rauðvínið kom í gær! |
![]() |
| Ótrúlega þægilegt að panta í gegnum netið og fá sent heim. Reyndar var póstburðarmaðurinn ekkert svakalega hress þegar hann var búinn að rogast með þessar 18 flöskur uppá þriðju hæð (fjórðu á íslenskan mælikvarða). |
![]() | |
| Föstudagsmorgnar eru yfirleitt frekar rólegir. Þá erum við annað hvort í ljósmyndun eða teikningu. Síðastliðinn föstudag vorum við í seinasta teikningartímanum. |
![]() |
| Treptower Park |
![]() |
| Greifswalderstraße |
![]() |
| Lestakort yfir Berlín. Við þetta samgöngunet bætast svo sporvagnar og strætisvagnar. |
![]() |
| Við hjónin fórum í hjólatúr um Charlottenburg hverfið um daginn. Ég hafði fengið verkefni í listasögukúrs í skólanum sem snérist um að skoða eitt af torgum borgarinnar. Ég valdi Gierkeplatz sem er í kringum þessa kirkju, Luisenkirche, sem var byggð árið 1716 og endurnýjuð á árunum 1823-1826 af Karl Friedrich Schinkel, einum þekktasta arkitekt Prússa. Kirkjan var að lokum endurbyggð að mestu leyti eftir að sprengja féll á hana í loftárás árið 1943. |
![]() |
| Hérna sést kirkjan fá austri. Hún stendur á torgi sem að er hringlaga og svo eru íbúðahús allt í kring. |
![]() |
| Í næstu götu rákumst við svo á þessa huggulegu hjólabúð. |
![]() |
| Mér varð hugsað til Kobba þegar að ég sá þessa fallegu jólaskreytingu í glugganum hjá þeim. |
![]() |
| Þetta hús er svo í sömu götu og Gierkeplatz. Það hýsir keramiksafn Berlínar. Nokkrum mínútum eftir að þessi mynd var tekin gerði hellidembu svo að það voru ekki teknar fleiri myndir þennan daginn. |