![]() |
| Filmhaus byggingin er hluti af Sony Center torginu við Potsdamer Platz. |
![]() |
| Hér sést áhugafólk um Werner Herzog. |
![]() |
| Filmhaus byggingin er hluti af Sony Center torginu við Potsdamer Platz. |
![]() |
| Hér sést áhugafólk um Werner Herzog. |
![]() |
| Fann uppskriftina hér. Ef að þið lumið á þaulreyndri uppskrift að flatkökum þá megið þið alveg deila henni með mér. |
![]() |
| Freiberg er 40 þús. manna bær sem hefur verið til frá því 1186. Þar var námuvinnsla í um 800 ár eða til ársins 1969 en svæðið var mjög ríkt af silfri. |
![]() |
| Alexander von Humboldt var aðalmaðurinn á svæðinu á 18. öldinni og stundaði sín fræði í Freiberg Bergakademie (námuháskólanum). |
![]() |
| Við fórum að skoða akademíuna og hér sjást krakkarnir vera að skoða tækniminjasafn skólans. |
![]() |
| Þar eru allskyns hlutir, t.d. þessi borhamar. |
![]() |
| Þar eru líka fjöldi lampa og lugta, því ljós er víst ansi mikilvægt ofan í jörðinni. |
![]() |
| Þaðan var líka ágætt útsýni yfir næstu þök. |
![]() |
| Hér sést yfirborðshluti Reiche Zeche námunnar. Háskólinn á svæðinu á núna allar námurnar og rekur þær sem skólanámur og er auk þess með sýnisferðir. |
![]() |
| Hér sést lyftan sem að við fórum í niður a 150m dýpi, en náman er í heild um 800m djúp. |
![]() |
| Ég og Kim í góðum gír á 150m dýpi að hefja nokkurra kílómetra gönguferð í myrkrinu, en heildarlengd námuganganna í Freiberg er um 2.000 km! |
![]() |
| Hópurinn að skoða eitthvað merkilegt. |
![]() |
| Alvöru námur er með teinum og vögnum. |
![]() |
| En það var voða gott að koma upp á yfirborðið og haustblíðuna eftir þrjár klukkustundir í myrkrinu og kuldanum. |
![]() |
| Hér er húsið á móti. Það er mikið af götulist á þessu svæði. |
![]() |
| Það er líka mikið meira framboð af góðu kaffi í Friedrichshain en í okkar hverfi. |
![]() |
| Stórir húsgaflar eru þó um alla borg. |
![]() |
| Við erum bæði orðin sjúk í Berlínardrykkinn Club-Mate. |
![]() |
| Hér eru samnemendur mínir að njóta fyrstu kaffipásu vetrarins. |
![]() |
| Þessi elska er komin á langan bókaóskalista. |
![]() |
| Með henni fylgja nefnilega þessi tvö spjöld... |
![]() |
| ...sem hjálpa mjög mikið við að þekkja í sundur mismunandi tengundir af ljósmyndapappír. Eitt af mörgum góðum hjálpartækjum ljósmyndaforvarðarins. |
![]() |
| Hér eru allir að gúffa í sig hádegisverði. |
![]() |
| Við Júlía pössuðum Óla í tvo tíma á meðan Jakob og Sóley kíktu á Sammlung Boros, sem er einkasafn nútímalistar sem Boros hjónin eru með til sýnis á heimili sínu í loftvarnabyrgi í miðbæ Berlínar. |
![]() |
| Það var auðvelt að passa strákinn því hann vildi aðallega skoða tré og æfa sig að labba upp og niður tröppur. |
![]() |
| Hér eru Óli og Júlía við loftvarnabyrgið. |
![]() |
| Svo fórum við að sjálfsögðu með gestina út að borða á Monsieur Vuong. |
![]() |
| Það er algjört möst. |
![]() |
| Óli fékk skammir fyrir að plokka í hátalarann. Jakob fékk einmitt skammir fyrir að pota í þennan sama hátalara þegar hann var lítill og vitlaus. |
![]() |
| Sá litli var ekki lengi að jafna sig því hann fékk að fara á róló og skoða dýrin í Hasenheide almenningsgarðinum. |
![]() |
| Þessir góðu gestir skildu svo eftir fallegar plöntur í eldhúsglugganum okkar þegar að þau fóru. Takk fyrir komuna! |
![]() |
| Skruppum á fallegt kaffihús sem að heitir The Barn. Þessir verkamenn höfðu ætlaði þangað líka en snéru við í dyrunum. Gæti verið að þetta hafi verið of fínt eða dýrt fyrir þeirra smekk. Sáum þá hálftíma seinna sitjandi á bekk með sinn hvern ísinn. |
![]() |
| Stundum sér maður bara risastóra húsgafla í Berlín. |
![]() |
| ...og fallega bakgarða þar sem öllu ægir saman. |
![]() |
| Við settumst á bekk og nutum góða haustveðursins. Júlía krafðist þess að nota trefil vegna árstíðarinnar þrátt fyrir að það væri 17°C hiti. |
![]() |
| Hér er frúin að losa fákana okkar. |
![]() |
| Þetta er fallegur veggur. Verum vinir. |
![]() |
| Hér er hans nánasta umhverfi. Allstaðar verið að byggja og breyta. |
![]() |
| Focaccia með ólífum og fersku rósmarín. |
![]() |
| Deigið er dálítið þykkara en vöffludeig og skonsurnar eru bakaðar á pönnukökupönnu við vægan hita. |
![]() |
| Þær eru svo góðar að það er ekki hægt að hætta að narta í þær. |
![]() |
| Svona lítur staflinn út (mínus fjórar sem að við borðuðum heitar á meðan ég bakaði). |
![]() |
| Náðum að heilsa uppá Sigga og Kolbrúnu daginn áður en að þau fluttu aftur úr landi (enn einu sinni). |
![]() |
| Oliver og Anne eru þýskir vinir okkar. Þau komu með okkur og við sýndum þeim undur Íslands. Hér erum við á leið í hellaskoðun á Snæfellsnesi. |
![]() |
| Júlía heilsaði uppá Djúpalónsperlurnar fögru. |
![]() |
| Þegar að túristarnir voru farnir skruppum við Júlía vestur með pabba og mömmu yfir verslunarmannahelgina. Hér er nestispása í Selárdal. |
![]() |
| Þegar komið var á Flateyri drifum við hana Gróu ömmu hennar Júlíu með okkur á Vagninn í kvöldmat. Góður bitinn þar og alltaf góð stemmning. |
![]() |
| Gógó frænka hennar Júlíu var næstum alla verslunarmannahelgina á þessum svölum. |
![]() |
| Ella og Hinni buðu okkur í kaffi. Á myndinni sjást einungis fimm sortir af sex. Þau eru alltaf jafn myndarleg. |
![]() |
| Diðrik rekur núna eigið fyrirtæki, Postulínsvirkið. Það er staðsett við Laugaveg og þar fást fallegir hlutir. Mæli með því ef að þið eruð að leita að tækifærisgjöf. |
![]() |
| Hildur og Egill eru afar hress. Hér eru þau að gæða sér á bröns á Bistro Geysi í Geysishúsinu. Mæli líka með því, en hann er hinsvegar ekki á matseðlinum bara svo þið vitið það. |
![]() |
| Erla og Jón Bjarni eru líka spræk. Ég kíkti með þeim í bæinn á Menningarnótt. |
![]() |
| Sigga, Óskar og Vala eru meðal nokkurra vina minna sem að eru flutt frá København til Íslands. Hér erum við öll að gúffa í okkur kökum, pönnsum og fleira góðgæti. |
![]() |
| Amma og afi buðu mér í kaffi og ég bauð þeim uppá sýnikennslu á nýju myndavélina þeirra í staðinn. Kisa tróð sér með á myndina, en hún er víst vön að gera það. |