Apr 9, 2011

Fjör í vinnunni. Silver-mirroring hreinsað af eldgamalli og brotinni glerplötu.


 Joðíðið leysist upp í 96% etanóli.

 
Loftræstur vinnuskápur og ég í slopp og hvítum latexhönskum.

 Joðíð-ethanól 10 mín - agepon 1 mín - fixer 10 mín - vatnsskol 1 mín - hypoclean 3 mín - vatnsskol 10 mín - agepon 1 mín 
Semsagt ca. 36 mínútur á hverja mynd.

Fyrir joðíð-etanól meðferð. Takið eftir fjólubláa blettinum hægra megin á myndinni, svokallaðri silfurútfellingu.

Eftir viðgerðina. Nú er aðeins ljósblár blettur á miðri myndinni. Það er fixer skemmd, sem þarfnast öðruvísi efnameðferðar.

Apr 3, 2011

Heimsókn í Myndlistaskóla Reykjavíkur

Diðrik og vinnuborðið hans. Hann er afar fær í að móta postulín en svaka lélegur í að taka til eftir sig.
Mér finnst samt kreatívitetið skipta meira máli en hreinlætiskenndin, enda er ég sjálfur haldinn rykblindu.

 Útsýnið úr JL húsinu.

Sunnudagshádegi

Meira af safninu