€ 19,95 = 3.177 ISK - Er munurinn (löngu ermarnar og vasinn) virkilega 95.813 króna virði? |
Dec 31, 2011
Dec 23, 2011
Þorláksmessa í Berlín
Það er frekar lítið að gera hjá þessum í augnablikinu, enda hefur ekkert snjóað hér það sem af er vetri. |
Hann er þó algjörlega til í slaginn. Líklega best græjaða Lada Sport sem að ég hef séð. |
Svo var jólatréð tekið inn. Það var lítið mál að finna tré, en fót gátum við hvergi grafið upp þrátt fyrir mikla leit... |
...svo að við þurftum bara að nýta það sem til var á heimilinu. Málinu reddað. |
Dec 20, 2011
Jæja, nú er ég loksins kominn í jólastuð!
Dec 13, 2011
Dec 12, 2011
Dec 8, 2011
Dec 5, 2011
Cyanotype workshop - HTW
Ég fór á workshop í skólanum um helgina þar sem að við lærðum að prenta ljósmyndir með 170 ára gamalli aðferð sem að heitir Cyanotype.
Alltaf er maður nú að prófa eitthvað nýtt hérna í útlöndum.
Svo þarf að setja negatífu eða pósitífu ofaná pappírinn og lýsa með UV ljósi svo að eitthvað gerist. |
Það eru svaka fallegir litir í svona ljósi og allir þurfa að vera með sólgleraugu. |
Svo er að skola drulluna af... |
...og láta liggja í vatni í 15 mín. |
Hér eru Lukas og Rosa með afrakstur helgarinnar. Hér fyrir neðan eru svo myndirnar sem að ég náði útúr þessu. |
Liturinn sem að fæst með þessari aðferð heitir Prússneskur blár eða Berlínar blár. |
Þessi aðferð náði víst ekki miklum vinsældum vegna þess hversu ónáttúrulegur liturinn er. Hún var þó mikið notuð til þess að taka afrit af teikningum og var upprunalega aðferðin til að búa til svokölluð Blueprints. |
Alltaf er maður nú að prófa eitthvað nýtt hérna í útlöndum.
Subscribe to:
Posts (Atom)