|  | 
| Það er búið að rigna hvern einasta dag í ca. tvær vikur. Erum að verða svolítið þreytt á því. | 
|  | 
| Eintóm fegurð í Oberschöneweide. Útsýni af annarri hæð í skólanum. | 
|  | 
| ...og því var að sjálfsögðu fagnað með óvæntu stefnumóti við risastórt Sovéskt minnismerki í Treptower Park | 
|  | 
| Það er reist til minnis um sovéska hermenn sem að féllu í Berlín og til heiðurs stríðshetjum þeirra. Auk þessu eru víst 7000 sovéskir hermenn grafnir á svæðinu. | 
|  | 
| Þetta er stærsta stytta sem að við höfum séð. | 
|  | 
| Hetjur Sovétmanna notuðust greinilega við sverð þegar þær björguðu börnum. | 
|  | 
| Júlía var að sjálfsögðu með kaffi á brúsa. | 
|  | 
| Hér sjást ósköpin svo úr lofti. Miðað við skalann í vinstra horninu þá er minnismerkið u.þ.b. 500 metrar að lengd og 100 metrar á breidd. | 
|  | 
| Svo var farið beint heim að elda kótelettur í raspi með kartöflum, rauðkáli og mais. Omm nomm! | 
|  | 
| Við erum að hamast við að klára verkefni fyrir annarlok. Undanfarið erum við búin að læra að eima rauðvín og fá út 99% Ethanol. | 
|  | 
| Við eigum líka að taka nokkrar ljósmyndir á filmu til þess að læra að framkalla. | 
|  | 
| Svo erum við líka búin að læra að lita með Indigo lit. Það er mikið vesen. | 
|  | 
| En kemur svona rosalega vel út. |