Einn af kennurum mínum þennan veturinn vinnur sem kvikmyndaforvörður hjá
Deutsche Kinematek, sem er til húsa í Filmhaus við Potsdamer Platz. Hann bauð okkur nemendunum þangað sl. föstudag á málþing um leikstjórann
Werner Herzog.
 |
Filmhaus byggingin er hluti af Sony Center torginu við Potsdamer Platz. |
 |
Hér sést áhugafólk um Werner Herzog. |
 |
Dagskrá málþingsins var ansi fjölbreytt. Þar fjölluðu sex kvikmyndafræðingar og kvikmyndagerðamenn um nokkrar hliðar á þessum sérstaka og afkastamikla manni Werner Herzog, en af nógu efni er að taka því hann hefur leikstýrt yfir 60 myndum á 50 árum. |
No comments:
Post a Comment