Nov 25, 2012

Tiergarten

Ég átti leið í gegnum Tiergarten á leið minni heim úr vettvangsferð á Potsdamer Platz í vikunni. Tók eftir því að ennþá hanga nokkur lauf á trjánum, enda hefur haustið verið ansi stillt og milt. Þau lauf sem fallið hafa liggja svo eins og teppi yfir jörðinni. Ekki slæmt að fá að njóta haustlitanna í svona langan tíma.



1 comment:

Julia said...

Þyrftum næst að mæla okkur mót á þessum bekk með bók og kaffi...